15. Sep 2026 · 08:02
„Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“
Dagný Brynjarsdóttir segir sorglegt að sjá Ísland dragast aftur úr öðrum þjóðum þegar kemur að umgjörð í fótbolta kvenna. Hún vill gefa til baka til íslenska boltans, eftir langan og farsælan feril sem atvinnumaður og landsliðskona, en heldur öllu opnu varðandi framhald sitt sem leikmaður.