Vísir – Allt
29. Aug 2026
Íslendingaliðið Kristanstad vann AIK í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Tveir Íslendingar voru í byrjunarliði Kristianstad. Sömuleiðis vann Thelma Karen Pálmadóttir og félagar í BK Häcken og halda toppsæti deildarinnar.
Vísir – Allt
29. Aug 2026
Bergdís Sveinsdóttir skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Víkingur lagði Grindavík/Njarðvík að velli, 3-0, í 17. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Heimavelli hamingjunnar í Fossvoginum í dag. Þetta var annar sigur Víkings í röð í deildinni sem kemur liðinu upp úr botnsæti.
Vísir – Allt
29. Aug 2026
Fram tryggði sér mikilvæg þrjú stig með sigri á Stjörnunni í sautjándu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Tvö mörk hjá heimakonum á lokamínútum leiksins lyfti liðinu upp úr fallsæti.
Vísir – Allt
29. Aug 2026
Hér fer fram textalýsing frá leik Fram og Stjörnunnar í sautjándu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Flautað verður til leiks á Lambhagavellinum klukkan 14:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 3.
Vísir – Allt
29. Aug 2026
Hér fer fram textalýsing frá leik Víkings og Grindavíkur/Njarðvíkur í sautjándu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Flautað verður til leiks á Víkingsvellinum klukkan 14:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 1.
Vísir – Allt
29. Aug 2026
Emelía Óskarsdóttir og félagar í HB Køge halda sigurgöngu sinni áfram í dönsku úrvalsdeildinni. Félagið vann öruggan 2-0 sigur á stigalausu liði AGF.
mbl.is – Fótbolti
29. Aug 2026
Linda Líf Boama, landsliðskona í fótbolta, er gengin til liðs við Charlton á Englandi frá sænska félaginu Kristianstad.
Vísir – Allt
28. Aug 2026
KR komst upp í 2. sæti Lengjudeildar kvenna með 3-5 sigri á Haukum á Ásvöllum í kvöld. Systurnar Kara og Katla Guðmundsdætur skoruðu báðar tvö mörk fyrir KR-inga.
DV
28. Aug 2026
Spænska knattspyrnukonan Esther González hefur samið við Al-Qadsiah í Sádi-Arabíu, aðeins um mánuði eftir að hún fékk sig lausa undan samningi við Gotham FC í Bandaríkjunum.
mbl.is – Fótbolti
27. Aug 2026
HK og Keflavík skildu jöfn, 1:1, í 1. deild kvenna í fótbolta í Kórnum í kvöld.
RÚV – Íþróttir
27. Aug 2026
Esther González mun leika í sádiarabísku deildinni á komandi tímabili. Nánar tiltekið með Al Qadsiah, liðinu sem Sara Björk Gunnarsdóttir lék með í tvö ár.González lék síðast með Gotham FC í Bandaríkjunum en fékk samningi sínum rift í júlí. Hún sagði persónulegar ástæður liggja að…
mbl.is – Fótbolti
27. Aug 2026
Spænska knattspyrnukonan Esther González er gengin til liðs við Al Qadsiah í efstu deild Sádi-Arabíu.
mbl.is – Fótbolti
27. Aug 2026
Sveindís Jane Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í bandaríska knattspyrnuliðinu Angel City eru án sigurs í síðustu sex deildarleikjum sínum eftir tap gegn North Carolina Courage í bandarísku atvinnumannadeildinni á útivelli í nótt.
mbl.is – Fótbolti
26. Aug 2026
Knattspyrnukonan Dagný Brynjarsdóttir er komin í nýtt starf hjá enska félaginu West Ham.
mbl.is – Fótbolti
26. Aug 2026
„Það er ekki oft sem við vinnum Evrópuleiki 8:1 og við áttum von á meiri mótspyrnu í dag en raun bar vitni,“ sagði Agla María Albertsdóttir fyrirliði Breiðabliks eftir stórsigur á Rúmenska liðinu Csíkszereda í 1. umferð Evrópubikars kvenna í fótbolta í kvöld.
Vísir – Allt
26. Aug 2026
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir voru báðar í byrjunarliði Inter sem tapaði 2-0 fyrir Wolfsburg í fyrri leik liðanna í þriðju umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Vísir – Allt
26. Aug 2026
FH vann góðan 2-0 sigur þegar liðið sótti kýpverska meistaraliðið Apollon heim í fyrstu umferð undankeppni Evrópubikarsins í fótbolta kvenna í dag.
mbl.is – Fótbolti
26. Aug 2026
Grótta tekur á móti Selfossi í 1. deild kvenna í knattspyrnu á laugardag. Með sigri tryggir Grótta sér sæti í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins. Leikurinn verður jafnframt góðgerðarleikur þar sem safnað verður fyrir Ljónshjarta.