2. Oct 2026 · 21:40
„Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“
Einar Guðnason þjálfari Víkings sagðist bera stærstan hluta ábyrgðarinnar á falli liðsins úr Bestu deild kvenna eftir tveggja marka tap gegn Þór/KA í lokaumferðinni. Hann sagði mistök á undirbúningstímabilinu og í gegnum mótið hafa reynst Víkingum dýrkeypt.